Lýsing

Brottför kl. 10 frá FFA, Strandgötu 23

Safnast saman í bíla ef vill.

Fararstjórn: Jóhannes Geir Sigurgeirsson á Öngulsstöðum


Ekið að brúnni við Hrafnagil þar sem bílum er lagt. Þaðan er lagt af stað eftir bökkum Eyjafjarðarár og skíðað að Öngulsstöðum. Endað í kakó og kringlum í hjá hjónunum Jóhannesi Geir Sigurgeirssyni og Ragnheiði Ólafsdóttur í Gamla bænum á Öngulsstöðum.


Vegalengd  ca 5 km (helmingi lengra fyrir þá sem vilja fara sömu leið til baka).

Hækkun er óveruleg og þá bara síðustu metrana upp að Öngulsstöðum. Þægileg leið sem ætti að henta flestum.


Þátttaka ókeypis.

 




Skráning í ferðina
Skráning í ferðina

Búnaður

  • Dagsferðir á gönguskíðum

    Nauðsynlegur búnaður í dagsferð á gönguskíðum:

    Gönguskíði og skíðaskór. Best er að hafa skíði með stálköntum/utanbrautarskíði

    Skíðastafi (athugið að ólin sé þannig að þið komist í þykkum vettlingum í hana)

    Gott að hafa meðferðis skinn á skíðin

    Skíðagleraugu, sólarvörn og varasalvi

    Vind- og vatnsheldan jakka

    Vind- og vatnsheldar buxur

    Ullarnærföt

    Hanska/vindhelda vettlinga

    Drykkjarflösku og smá orku til að narta í t.d. orkustykki (alltaf eitthvað heitt að drekka)

    Sólarvörn og varasalvi

    Gott að hafa höfuðljós í lengri ferðir

    Sjúkragögn, hælsærisplástur, verkjalyf og annað smálegt

    Sjúkragögn (hælsærisplástur og annað smálegt)

    Gott að hafa létta úlpu og þurra vettlinga (gott líka að hafa „pokavettlinga“ til að hafa yfir aðra). Margir hafa líka með sér þurra húfu